föstudagur, september 14, 2007

Lok vinnuvikunnar

Ég gerði síðustu sultu haustsins í kvöld - 1.5kg sykur á móti 1.5kg rifsber. Nolla finnst bláberjasulta betri en rifs og ég veit að pabba finnst það líka. Veit ekki með mömmu. Mér og KK finnst rifsið betra.

KK er að kvarta í mér að ég lesi ekki hvað hún er að skrifa. Nú er ég búinn að lesa það og setja inn 3 komment - það kallar maður nú afköst.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Rifsið, ekki spurning! Það kann að vísu að hafa nokkur áhrif að ég þoli bláberin verr, a.m.k. eigin uppskeru, veit ekki hvað veldur. Hvaða komment ertu að tala um? M.

Nafnlaus sagði...

Rifs er betra fuglarnir eru sammála!
Einar

GO sagði...

Já, fuglarnir ættu að vita þetta. Enda sá ég að þeir höfðu étið talsvert af rifsinu á Skálabrekku. En ætli þeim þyki jarðarberin ekki best - því ég sá morandi af hálfétnum jarðarberjum þar líka.