Eftir að hafa farið að verzla með Kristjóni Karli í Svínabúðinni hér í Grafarvogi þá skrapp ég til mömmu. Ég skrapp þangað til að athuga með "búslóðina" mína sem hún hefur samviskusamlega geymt fyrir mig í nokkur ár. Þetta var nú svo sem ekki merkilegt. Bækur að mestum hluta og síðan alls kyns drasl sem safnast upp hjá manni. Ég náði að fylla einn svartann sem verður að teljast gott af manni sem kann ekki að henda. Nú á ég eftir að koma heim með rafmagnsgítarinn og magnarana. Ef einn af mínum 3 lesendum vantar rautt rúm (150x200) þá er það gefins gegn því að vera sótt, dýnur geta fylgt en ég tými ekki að gefa þær því þær eru nánast nýjar og lítið notaðar.Þegar ég kom heima var von á Gústa og Ilmi. Þannig að ég lét ekki segja mér það tvisvar og henti í 20-30 vöfflur, þeytti rjóma og hitaði kaffi. Þetta var étið upp til agna enda mesta lostæti með þessu var m.a. rifsberjasultan sem ég sultaði um daginn.
Í kvöld ætla ég svo að elda læri handa mömmu og tengdó!
2 ummæli:
Lærið var gott, kærar þakkir, og allt meðlætið! Góður félagsskapur, gott kvöld. Mamma
Mig vantar ekki nýja dýnu né rúm ef út í að er farið. Fjölskyldan lagði í púkk fyrir rúmi handa mér þegar fertugsaldurinn brast á með júróvisjónstælræðum og fleiru. Tek það fram að fjölskyldunni fannst óþarfi að leggja út fyrir meira en 90 sentimetra breiðu rúmi og röksemdafærslan; fólk gengur ekki út eftir þrítugt og því er óþarfi að spandera gólfplássi á rúmpláss sem er autt eða illa skipað. Eins gott segi ég þar sem sjálfshjálparbækurnar fyrir singlana taka svo mikið pláss...
My point; vantar ekki rúm og ekki ýkja gömbó; það eru nú huxa ég 4 sem lesa bloggið þitt, ég, kk, mamma þín og svo náttúrulega þú.
Æ afsakið, rúmfærslan þín setti mig alveg úr jafnvægi hehe.
Skrifa ummæli