Yfirleitt hjóla ég í vinnuna úr Grafarvogi í Ármúla. Þetta tekur mig á milli 22 til 28 mínútur - allt eftir því hversu æstur ég er í að komast í vinnuna.Í morgunn fór ég á bílnum. Þá keyri ég Kristjón á leiksskólann í leiðinni (Langholtsvegur). Í stuttu máli sagt er geðbilun að vera á bíl á þessum tíma dags ef maður þarf að ná einhverju á góðum tíma. Ég var 20 mínútur að ná niður að Sæbraut til móts við Endurvinnsluna og þá átti ég eftir 5-7 mínútur í leiksskólann.
Mörgum finnst tilhugsunin skelfileg að hjóla á Íslandi, nema sér til skemmtunar. En ég get sagt að það venst eftir nokkra daga. Þetta er líka hollt og gott - þetta er það sem gerir það að verkum að Danir lifa þó þeir reykji og drekki eins og svín!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli