Jæja, MoshogBo (eins og Guðrún segir) eru komnir og farnir. Ég fór með þá í stíft Suðurlands-prógram og sýndi þeim blá lón, Gay-sera, Gullna fossa, og að lokum 50 þúsund manna gleðigöngu í 300.000 manna landi. Hvað meira er hægt að gera á 5 dögum. Þeir voru ansi glaðir og þreyttir þegar ég skilaði þeim á Keflavík á sunnudag. Eftir það brunuðum við Guðrún austur til ömmu og afa í sumarbústaðinn við Apavatn. Já það er búið að vera nóg að gera, phew!Meðfylgjandi mynd er tekin í Gleðigöngunni. Það skal tekið fram að þó Nolli sé þarna á myndinni þá er hann ekki á nokkurn hátt hýr, nema í gamla skilningi þess orðs eða glaður. Hann er reyndar maður utan sambanda og að nálgast þrítuginn á ógnarhraða. En kommon maður, það var fullt af fólki þarna í þessari göngu. Meira að segja ég!
2 ummæli:
Já gott að þú skulir vera svona laus við fordóma hehehehe. Ekki bróðir minn sko
hehehhehe, you said it frænka! En mikið er annars bloggið þitt skemmtilegt Gummi.
Skrifa ummæli