þriðjudagur, ágúst 07, 2007

Bergstaðir 40 ára

Haldið var uppá 40 ára Bergstaða um helgina. Með því er ekki átt við raunafmæli staðarins, en hann er mikið eldri, heldur afmæli þeirrar tíðar sem Bergstaðir hafa verið í eigu núverandi eigenda.

Það var safnast saman við Sýrukerið á sunnudaginn og kerið fyllt af sýru. En sagan segir að risinn Bergþór, sem bjó í Bláfjöllum, hafið hoggið þetta ker í bergið og mælt svo um að setja þyrfti sýru í það ár hvert. Síðan var grillað og farið í leiki. Kristjón skemmti sér vel þennan dag, en við feðgar höfðum skroppið í sólarhringsstopp á Bergmýri. Mamma fékk að hvíla sig heima á meðan.

Annars var þessi helgi bara skemmtileg og afslappandi.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Tilhvers að fylla það af sýru. Þvílík sýra.