Kristjana er nú komin um 27 vikur á leið með tvíburana - sem eru kallaðir A og B af læknum og ljósmæðrum en ég held að við ætlum að reyna að finna önnur nöfn eftir fæðingu. Einnig þykir mér ólíklegt að Snúður og Snælda muni ná að loða við þau eftir fæðingu. Þetta eru sem sagt stelpa og strákur fyrir þá sem ekki vita.
Kristjana kom örstutt inn í Arion um daginn. En mér þykir svo gaman að vinna að ég næst ekki þaðan út öðruvísi en með (yfir)valdi. Þá varð fólki að orði við hana að hún væri nú ekki eins og hvalur. Hún hváði og var þá sagt að ég hefði sagt þetta. Þetta er nú alveg rétt. Ég hef sagt að hún sé huge og ég hef sagt að hún vaxi svo hratt að hún sé eins og hvalur. En auðvitað er hún ekki eins og hvalur. Fyrir þá sem efast hef ég látið fylgja með tvær myndir. Konur eru ekkert líkar hvölum - ekki heldur þegar þær eru óléttar.
2 ummæli:
ARRRG!!! Ég er heldur ekkert lík þessari konu á myndinni! Hún er eins og hvalur! Þetta hlýtur að vera photoshoppuð mynd. Það er engin grönn kona með svona stóra bumbu nema hún sé með a.m.k. 3 börn.
Púff- það kann ekki góðri lukku að stýra að kenna konuna sína við sjávarveru- nema kannski hafmeyju. Muna það næst Gömbólínó.
Skrifa ummæli