miðvikudagur, júní 13, 2007

Kuldi


Mér finnst stundum að ég beri Ísland mikið saman við Danmörk. Kannski það mikið að fólki sé farið að leiðast það gríðarlega. Kannski er maður enn einn fávitinn þar sem ekkert umræðuefni má koma upp án þess að maður byrji: ja, í Danmörku sko...

En! Þetta er kannski ekki svo skrítið. Þar sem munurinn er ansi mikill á mörgum sviðum. Nú síðast (og í vetur líka) hitastig.

Hvað er í gangi eiginlega? Hér er að verða kominn 17. júní en einungis 10 stiga meðalhiti. Hvernig get ég annað en borið saman það að í dag nota ég enn sama jakka og í vetur. En í fyrra fór ég ekki í peysu allt sumarið. Reyndar finnst mörgum heitt. Mér finnst kalt.

-----

Það styttist í flutning. Um að gera að slaka þangað til.

Engin ummæli: