sunnudagur, júní 03, 2007

Sund

Ég læt stundum af eigingirni minni og tek krakkana með í sund. Þá er eins og gefur að skilja ekki mikið synt.

Í morgun fórum við í Árbæjarlaugina (Guðrún Rósa fékk að velja). Ég keypti svaka fínt "sundsæti" fyrir Kristjón Karl. Þetta er svona kútur sem hann situr í.

Guðrún Rósa var á kafi næstum allan tíman og sparkaði í 10 fullorðna og 2 börn þegar hún var að taka kollhnísa í vatninu. Einnig skvetti hún aukalega á 7 fullorðna og 1 ungabarn í þessum æfingum.

Kristjón Karl var nokkuð fljótur að verða leiður á því að vera í sundsætinu og var alltaf að reyna að komast upp úr því. Á endanum leyfði ég honum að setjast á bakkann. Þá tók hann upp á því að stökkva fram af bakkanum og endurtók þennan leik all oft og alltaf ívið glæfralegar. Ég var náttúrulega að rifna úr stolti þarna og er enn. Hver veit nema þarna sé kominn næsti Alexander Popov. Kannski er hann bara brjálaður áhættufíkill...

Engin ummæli: