Við fórum austur á Skálabrekku um síðustu helgi. Það var ágætt í alla staði. Veðrið má náttúrulega alltaf vera betra á skerinu en við gátum samt spókað okkur úti. Á sunnudeginum kom Nolli með krakkana og nokkrar plöntur sem við plöntuðum hér og þar.Við keyptum flugdreka handa Guðrúnu Rósu á leiðinni. Þetta var hin besta skemmtan. Þessi dreki var með ansi mörg líf þar sem hann slapp laus, náðist, festist, slapp laus, náðist. Hann var hins vegar drepinn af krökkunum á endanum. En hann var skemmtilegur.
Vikan leið svo í þessari vinnuvímu sem maður fer í og maður var degi á eftir alltaf útaf öðrum í Hvítasunnu.
Ég og Guðrún Rósa fórum á sundnámskeið í gær. Gaman að segja frá því að hún er alveg að mastera baksund. Við unnum líka aðeins í því að anda á skriðsundi. Ég er nokkuð viss að ég sá smá sýnishorn af því sem koma skal.
Krakkarnir eru búnir að vera ansi hressir í dag og við erum alveg búin á því hjónin. Nú hlakkar mann bara til þegar það koma tvö í viðbót.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli