Í dag þótti mér það hafa gerst ansi oft að þegar ég væri að skrifa c þá kæmi x á undan því. Ég var farinn að halda að eitthvað væri að mér.En... ...svo fór ég að hugsa. Og leit á lyklaborðið. Jú x er við hliðina á c. Þó ég sitji skakkur og skældur við tölvuna er ólíklegt að ég skrifi alltaf .xcom við enda vefslóða.
Í rannsóknarskyni leit ég nánar á takkana. Og viti menn! Á milli þeirra var eitthvað hvítt. Ég náði mér í hníf og skar þetta í sundur eða molaði. Og nú kemur ekkert xc, sko: cccccc!
Ég nefndi þetta síðan við konuna og hún mundi þá að þarna hafði helst niður mjólk um daginn. Skýringin komin! Svona geta einfaldir hlutir oft orðið flóknir.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli