miðvikudagur, maí 23, 2007

Hreyfing

Nei ég er ekki byrjaður að æfa í Hreyfingu! Er það ekki bara fyrir stelpur?

Ég er hins vegar að hreyfa mig ansi mikið þessa daganna. Búinn að hjóla í vinnuna í tvær vikur - tek þó fram að ég var ekki í þessu átaki Reykjavíkurborgar, þó mér lítist ágætlega á það ef það fær fólk til að hjóla áfram. Ég jók líka mína daglegu sundmetra um 500 - tók reyndar bara 1000 í dag því ég er svo þreyttur, phew!

Við ætlum austur í bústað um helgina. Það verður örugglega algjört stuð.

2 ummæli:

Kristjana Knudsen sagði...

Ég vil bara minna á það að því meira sem þú hreyfir þig því minna sé ég af þér:) En maður þarf að fórna ýmsu fyrir flottan eiginmann! Er það ekki?

GO sagði...

Þokkalega elskan mín!