sunnudagur, nóvember 12, 2006

Afmæli

Nolli (29) átti afmæli í gær. Af því tilefni buðu pabbi og Ása okkur í brauðtertu og marenz. Við KK og börnin héldum síðan áfram og vorum líka í læri. Eins og þetta hefði ekki verið nóg keyrði ég konuna á djammið. Guðrún sofnaði strax en KrK horfði á sjónvarpið með mér til 1. Um 1 kom mamma (KK) heim og við fengum okkur einn öl.

KrK er á þriðja pensilin-skammtinum. Við eigum tíma í rör 29. nóvember.

Ég keypti mér nýlega miða til Kaupmannahafnar - þar sem ég ætla að mæta í Julefrokost með CBS-liðinu. Moshe er búinn að lofa mér sófanum í Queensland.

Engin ummæli: