þriðjudagur, október 24, 2006

Hrefnu á diskinn minn?

Ég fór í IKEA með konunni í gær. Þetta var stórt og mikið og talsvert af leiðinni þangað er ekki upplýst (vöntun á ljósastaurum). Hér er kominn stærri kaffiteria og meira pláss til að dreifa úr dótinu. Það var ekki eins mikið af fólki og um daginn þegar ein helsta stofnbraut höfuðborgarsvæðisins kiknaði undan álaginu. Margir utanlandafarar svitnuðu á efri vörinni þann daginn.

Guðrún er veik heima í dag - og ég er hér til að þjóna henni og stytta henni stundir (kveikja á sjónvarpinu).

Fyrir rúmu ári borðaði ég Hrefnukjöt. Það var ágætt. Svona eins og góð steik sem er búið að krydda rosalega mikið. Þó steikin hafi verið vel krydduð var hægt að greina smá lýsisbragð þarna á milli. Hmmm...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ok það má vera að þið hjónakornin séuð upptekin, útivinnandi með tvö börn og allt það en kommon það er sko engin afsökun fyrir því að það eina sem sést á síðunni hjá KK er slátur og þessi hrefna er búin að vera ansi lengi á disknum þínum. gimmísommnjús!

Nafnlaus sagði...

Sammála síðasta ræðumanni. Og fleiri myndir. Var ekki afmæli nýlega?