fimmtudagur, desember 07, 2006

...

Ég er einn heima. Í kvöld á ég að(og er að) temja Kristjón Karl í að sofa í sínu rúmi. Inni í þessu er líka kennsla í að sofna sjálfur. Vegna þessa eru Kristjana og Guðrún Rósa í gistingu hjá Knudsenunum. Drengurinn sofnaði eftir tæpar 50 mínútur og 12 endurtekningar af athöfninni. Merkilegt nokk var athöfnin farin að hafa sefandi áhrif á hann undir restina. Nú er að sjá hvað hann sefur lengi í fyrstu lotu. Hann sefur amk eins og steinn (Steinarr) núna.

Annars er nákvæmlega vika þar til ég skelli mér heim til Hafnar í smá heimsókn og Julefrokost. Gaman, gaman...

Engin ummæli: