föstudagur, október 20, 2006

skramáh rutmmaks

Ég fékk mér nýja Internet Explorerinn í gær og Windows live messenger þannig að segja má að ég hafi fengið mér vænan skammt af Microsoft í gær. Ég hef nú ekki kynnst iE neitt rosavel á þessum skamma tíma en einn nýr eiginleiki er að mínu skapi. Þetta er sá möguleiki að hafa opna nokkra glugga innan sama browsers. Þessu var reyndar stolið af Opera. Nú er að sjá næst þegar ég stunda niðurhal hvort niðurhalskerfi Operu hafi líka verið innlimað í iE.

Annars sá ég að einhver sem les þetta blogg notar Netscape 7.1 - ég tek rándýru ítölsku herrahúfuna mína ofan fyrir þeim aðila.

1 ummæli:

Björkin sagði...

Þótt þú sért orðinn verðbréfajöfur finnst mér að þú mættir alveg blogga líka!!