fimmtudagur, október 19, 2006

Ó já

Við feðgar höfum verið hálfgerðir Lazarusar síðustu tvo daga og því haft það kózí saman heima. Þetta hefur þétt samband okkar og tel ég að það sé afar stutt í að sá stutti segji fyrstu tvö orðin: Guðmann og pabbi. Annars er ég að vona að ég þurfi ekki að snýta mér fyrr en eftir áramót næst - þetta er nú ekki gaman þegar fer að blæða mikið. Þetta er bara niður í kjöt eins og fólk segir.

Á morgun ætlum við familían að skella okkur í leigubústað í Brekkuskógi. Það er mikil spenna byrjuð að safnast upp hjá yngri kynslóðinni. Þetta gæti verið gaman og hver veit nema amma og afi sem eiga bústað þarna steinsnar frá kíkji í heimsókn eða öfugt.

Mér hefur síðan borist boð í julefrokost með vinum mínum í Dk þann 16. desember og hver veit nema maður skreppi. Það væri gaman.

Engin ummæli: