þriðjudagur, október 10, 2006

Framfaraskref

Kristjón Karl sonur minn var svo vinalegur að leigja mini-seríuna Archangel á VOD-inu fyrir okkur mömmu hans. Þetta var ágæt mynd þannig séð enda drengurinn bara 11 mánaða og ekki hægt að ætlast til að hann hafi hinn þróaða kvikmyndasmekk foreldra sinna (við leigðum Forty-year old Virgin síðast á VOD-inu).

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað næst!? Pantar hann borð á Grillinu fyrir foreldrana og hringir á taxa? Þetta er fyrirmyndarsonur og afskaplega almennilegur við foreldra sína.

GO sagði...

Væri fínt ef hann gæti farið í Bónus öðru hverju.

Nafnlaus sagði...

hann hefur góðan smekk á leikurum strákurinn.
kk