Ég vaknaði í morgunn við að verið var að spila semíháa tónlist í íbúðinni fyrir ofan og að fólk var að tala saman. Ég hugsaði sem svo að nágrannar mínir væru nú farnir að vera ansi árrisulir enda var klukkan 6:43. Það kom síðan smátt og smátt í ljós að þarna var á ferðinni svokallað eftirpartí. Núna er þetta enn í fullum gangi þó mér heyrist að leikjatölvan hafi verið tekin fram.
Ég tel nú að ég hafi í gegnum tíðina skemmt mér ansi vel. En ég er nú yfirleitt kominn í bælið alls ekki seinna en 5 og í seinni tíð hef ég nú yfirleitt verið sofnaður fyrir 3.
Þetta fer nú ekki í taugarnar á mér svo sem. Ef þetta er eina skiptið sko:-) Maður er með ágætt úthald á skemmtanagleði nágranna frá Danmörku.
laugardagur, september 16, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Eftirpartí já. Þetta vekur upp gamlar og góðar minningar frá sokkabandsárunum eða þannig. Ég finn það allavegana að ég vil helst vera farin í háttinn fyrir 2 um helgar. Það er af sem áður var og það fyndna er að ég sýti djammdagana ekki neitt. Svona er lífið skrýtið!
sama hér. Ég sýti djammið ekki vitund en verst þykir mér hvað ég er orðin framlág á kvöldin. Það er varla að mar tóri til miðnættis um helgar.
idg
Skrifa ummæli