Ég fór í sund í dag. Og synti heilmikið. Síðan fór ég í pottinn og þaðan í gufuna. Eftir gufuna fór ég síðan aftur í gufuna. Í "steinapottinum" hitti ég Alistair sem er að fara til Dehli á Indlandi á mánudaginn. Ég gleymdi að óska honum góðrar ferðar sem er ótýpískur ég - hins vegar er týpískt af mér að skila ekki kveðjum. Þannig að: góða ferð Alli!
Í gær leigði ég Capóte handa okkur hjónunum. Kristjana sofnaði yfir henni. Síðar í myndinni sofnaði ég. Þetta var ágæt mynd svo langt sem það náði. Skrítið að eyða ævinni svona mjóróma martínidrekkari. Bókin Með köldu blóði er hins vegar mjög góð - pabbi á hana.
laugardagur, september 23, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Mér finnst reyndar mjög kúl að vera mjóróma martíniþambari og bölva því daglega að vera djúpraddaður rauðvínsdrykkjumaður...
Já það er einhver sjarmi yfir því þó það sé fjarri manni...
Já, kærar þakkir fyrir það og einnig fyrir afar góðar pottaumræður. Ég fór þarna í steinapottinn, svo fór ég í diskinn, svo fór ég sturtu. Fattaði þá að ég hafði steingleymt að synda. Svona er maður að verða gamall og gleyminn.
Annars fannst mér Capote líka bara svona skrambi þokkaleg. Óþarflega löng en annars bara ágætis ræma.

Skrifa ummæli