fimmtudagur, september 07, 2006
BTW
Við tókum myndina "Riding the Bullet", eftir sögu Stephen King, á Borgarbókasafninu í Grafarvogi um daginn. Þessi mynd er afleit - ekki taka hana. Ég elska Stephen King - hann er minn Law and Order eða Dallas. En þetta var alger þvæla. Megnið af myndinni vissi maður ekki hvað var að gerast - aðalsöguhetja var alltaf að sjá einhverjar ofsjónir og maður vissi varla hvað var raunvera eða sýnir. Mér varð því ekki um sel þegar hann var stunginn af eitraðari könguló. Viti menn ofsýnirnar urðu minni!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli