sunnudagur, september 10, 2006

Athafnamaður

Hefi lokið málun á baðherbergi. Sturtubotninn er reyndar grábrúnn - hélt að þetta ætti að vera hvítt, en þetta er ágætt bara. Lyktin fór ekki eins illa í mig og ég bjóst við en reyndar var ég lítið hér eða fjölskyldan. Við skruppum austur á Skálabrekku meðan versta lyktin gekk yfir og dvöldum þar í grenjandi rigningu. Samt var sól öðru hvoru. Komum við hjá Bangsa á leiðinni í bæinn og keyptum okkur murtuflök (veisla í kvöld). Steinunn bauð okkur kræsingar sem við gerðum góð skil eins og segir oftar en ekki í gestabókum. Þau voru á leið á grænmetismarkað í Mosfellsdalnum - þau selja hins vegar fisk þar en ekki grænmeti. Svona er þetta nú allt skrítið.

Við fórum síðan í ÆKEA í gær og keyptum baðdót. Speglaskáp og svoleiðis. Svo borðuðum við á MacDónaz - ekki segja frá!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

En þið vitið að makkdó er frá djöbblinum!?