fimmtudagur, september 07, 2006

Ég er að mála

Ég er að mála baðherbergið okkar. Mér finnst alltaf jafn gaman að mála. Veit ekki af hverju. Kannski af því að lyktin minnir mig alltaf á jólin? Á morgun verður lyktin ekki jafn góð. Þá ætla ég að mála botninn með einhverjum viðbjóði. Ég er kominn með lífstíðarofnæmi fyrir lakki. Ég lakkaði á sínum tíma gólf fyrir vinnuveitanda minn og gríman stíflaðist. Lakkið hét nafni sem hljómar meira að segja ofnæmisvaldandi - M29. Þetta hljómar nú líka eins og sparileið hjá Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis eða áskriftarleið hjá Stöð 2. En alla vega þá leitar líkami minn á klósettið ef ég er mikið að anda að mér lakklykt. Eitt er víst - ég hefði orðið afleitur sniffari!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

haha, ofnæmisvaldandi skammstafanir. Það er eitthvað til í þessu