mánudagur, maí 15, 2006

Ritgerð & Draumurinn

Merkilegt hvað mörg fyrirtæki geta verið margbrotin. Sérstaklega netfyrirtæki sem geta verið með hálfdauðar útstöðvar sem enginn veit af - jafnvel þó sá enginn sé að leita eins og brjálæðingur. Er þetta eitthvað sem á að halda lífi í? Ef einhver veit um tilurð og tilgang þessarar síðu þá endilega láta mig vita - hefur þetta eitthvað með Ólympíuleikana að gera? Kannski verður netið eins og raunveruleikinn á endanum, þakið rusli sem almenningur og fyrirtæki hafa bara skilið eftir í Netheimum. Annars ætla ég svona hvað á hverju að fara að skrifa inngang og litla útskýringu á muninum milli magnrannsóknar og gæðarannsóknar - haha hvernig er þetta á íslensku?: Quantitative Research og Qualitative Research, það er spurningin.

Það er langt í drauminn - ekki hægt að segja annað, þó að það sé næsta víst að það bætist í færslurnar í dag en líklega ekki á morgun. Ég tek samt Moggann til fyrirmyndar og birti ekki nöfn sakborninga hér - þó Mogginn hafi nú gert það á baksíðunni í morgunn - heimur versnandi fer.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Eigindlegar (qualitative) og megindlegar (quantitative) rannsóknaraðferðir.

Hafið það gott öll þarna í Danaveldinu.

Heiða D.

GO sagði...

Já ég vissi þetta að sjálfsögðu:-)

Nafnlaus sagði...

Hemmi Gunn vs. Eyþór Arnalds er mun meira spennandi bardagi

GO sagði...

Já magnað að hann rétt mer sigur þar. En þó held ég ekki að hann hafi hugsað sér að verða næsti Hemmi Gunn