fimmtudagur, maí 18, 2006

Heimavið

Ég er heima núna - oftar en ekki er ég ekki heima á þessum tíma - á þessum tíma er ég yfirleitt læstur við tölvu í skólanum. Ég verð hér kannski til hádegis, KK er með í maganum og við ætlum að sjá hvort það lagist. Ég er til taks fyrir hana og strákinn. Tengdamamma er að fara til Íslands. Hennar verður eflaust sárt saknað af okkur öllum. Pabbi og Ása koma síðan á mánudag - þannig að hér er allt að verða vitlaust. Vegna þessa er ég að reyna að læra sem mest þannig að maður geti kannski tekið einn til tvo daga í frí.

Engin ummæli: