sunnudagur, maí 14, 2006

Maturinn hennar mömmu

Við fórum í mat til mömmu í kvöld. Kjulli, grænmeti og hrísgrjón. Tengdamamma kom með en hún er í heimsókn hjá okkur þessa vikuna. Þetta var ansi gott nema KK er eitthvað lin í maganum - hún er kannski að fá pestina frá okkur GR. Við tókum strætó - það er ferðamátinn hér og ansi fínn, þetta virkar hér. Ég held við fáum okkur samt bíl þegar við komum heim.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Heim? Eruði að koma heim? jeiiiiiiiiii!

Nafnlaus sagði...

Við komum heim í byrjun ágúst! Geggjað gaman:)