fimmtudagur, maí 18, 2006
Kötukvæði
Þetta er skemmtilegt sönglag sem ég syng oft fyrir Kristjón Karl. Ég hef nú aldrei verið alklár á textanum, enda er þetta lag yfirleitt sungið þegar mikið áfengi er haft um hönd. Hins vegar var ég oft að spá í þennan einfalda giftingarhring. Var hringurinn svona látlaus að hann sá hann ekki? Eða er þetta flóknara og einfaldur giftingarhringur táknar trúlofunarhring? Þá myndi sem sagt vera talað um tvöfaldan giftingarhring þegar maður væri búinn að segja já. En hvað sem því líður þá hefur þessi Kata nú verið meiri druslan að láta heyskapinn fara svona í sig.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Held að druslan hún Kata hafi ekki sett upp hringinn fyrr en mælandi í sönglaginu fór að gerast fjölþreyfinn.
Samanber einn kunningi minn sem byrjar alltaf á því að fara inn á klósett á ölstofunni og setja sinn hring í veskið.
Já þannig hún hefur sem sagt sett hann í vasann, kræf var hún. Sumir segja samt að hringur sé góð beita, a.m.k fyrir karlmenn.
Skrifa ummæli