Hér í Danmörku er mikið um hundaskít á gangstígum, stundum í pokum, stundum ekki. Stundum stígur maður í skít, sem festist undir skónum þannig að erfitt er að ná honum undan (skítnum ekki skónum). Mér datt í hug myndlíkingin "að vera eins og stiginn hundaskítur." Þ.e. skítur (maður sjálfur) lendir undir skó (yfirvaldi eða öðru illviðráðanlegu) og ekki bara klessist á stéttina heldur fer hluti af skítnum undir skóinn. Sá hluti verður síðan fyrir því að á hann er stigið í hverju skrefi, þangað til hann er skafinn undan og hent í blómabeð eða jafnvel uppleystur í polli.
Persóna Dustin Hoffman í "Marathon man" hefði getað sagt að hann væri eins og stiginn hundaskítur eftir lífsreynslu sína með Sir Lawrence. Sir Lawrence boraði í tönnina ódeyft (steig á hann) og síðan setti hann eitthvað efni í sífellu í 'borholuna' og spurði svo skemmtilega: "Is it safe?" (steig á hann aftur og aftur). Og að lokum var honum hent útúr bíl minnir mig. Já það er svo sannarlega ekki öfundsvert að vera eins og stiginn hundaskítur.
fimmtudagur, maí 18, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Nei það er ekki eftirsóknarvert. Örugglega ekki gott að vera skítur í poka samt. Er það ekki bara eins og fangelsi eða kúgun. Mér datt í hug myndin Midnight express. Aðalpersónan þar gæti hafa verið eins og skítur í poka.
Skrifa ummæli