sunnudagur, maí 06, 2007

Tvíburanámskeið

Við KK erum búin að vera á tvíburanámskeiði undanfarið. Þetta eru fimm tveggja stunda tímar þar sem fyrirbærið tvíburar er tekið fyrir á ógnarhraða. Hér er mjög mismunandi fólk samankomið sem á það sameiginlegt að ætla að fara að eignast tvíbura.

Á fimmtudaginn fórum við í "sýnisferð" niður á kvennadeild (eða er þetta bara kallað fæðingardeild? Ég er sífellt að sanna vankunnáttu mína í þessum málum.). Mér fannst þetta nú ósköp venjnuleg skoðunarferð þangað til að við komum inn á "fyrirburadeildina". Hér fá börn sem fæðast vel fyrir tímann að jafna sig. Satt að segja minnti þetta mig á gróðurhús. Börn í kössum undir útfjólubláum ljósum - barnaræktun. Þetta minnti mig líka á einhverja framtíðarmynd. Ansi spúkí. En gaman að sjá hvað nútíma tækni gerir kleift.


Á morgunn er síðasti tíminn. Þá verður nokkrum tíma varið í að prestur talar við okkur pabbana. Ætli hann eigi tvíburar?

Engin ummæli: