
Við erum loksins flutt úr þrengslunum í Barðanum... ...í jafnmikil þrenglsi í Hæðargarði. Það er hins vegar tímabundið til 20. júní en þá fáum við afhent í Jöklafoldinni. Það eru nokkrar líkur á víðáttubrjálæði fyrstu daganna þar.
En, alla vega þá búum við í hinni svokölluð Vífilslengju sem er víst kölluð það eftir arkitektinum. Ég þekki hann nú ekki en þetta er í svona mexíkönskum (já, ég segi enn Mexíkani) stíl. Þetta er ansi skemmtileg byggð þar sem engin íbúð er eins.
Jæja, vinkonur Guðrúnar eru í heimsókn. Þetta er svaka sport og kannski kaka á eftir.