Klukkan er0807 og ég var að tékka hvar við eigum að kjósa. Við erum enn skráð í kjörskrá í Barðavoginum þannig að við kjósum í Laugardalshöll. Ég held ég hafi alltaf kosið þar. Ja, nema tvisvar held ég. Þá kaus ég á Kjarvalsstöðum og í Laugarnesskóla.Nú er bara spurning hvað maður kýs. Við höfum svo sem ekki rætt það mikið hér á heimilinu enda teljum við allar líkur á að við kjósum ekki það sama. Sem mér finnst bara í fínu lagi - það væri nú ekkert gaman ef maður væri alltaf sammála frúnni.
Síðan er Júróvisjón í kvöld. Maður veit að maður þarf ekkert að kjósa þar. Það væri bara sóun á SMSi. Enda SMS ódýr í Balkanlöndunum að því er virðist
Engin ummæli:
Skrifa ummæli