Nýjasta nýtt! KK fór í mæðraskoðun í þessari viku og allt lítur vel út. Hún vex nú jafnt og þétt og tvíburarnir líka - reyndar vaxa þeir víst ansi hratt en í næstu viku (20) taka höfuðin að stækka hægar.Mæðraskoðunin leiddi í ljós að grunur okkar gæti reynst réttur. Þ.e. að þetta séu stelpa og strákur. Annar hjartslátturinn reyndist hraðari sem er víst merki um að þar sé stelpa á ferð.
Því má bæta við að ég fékk þau skilaboð að handan að þetta væru stelpa og strákur.
1 ummæli:
til hamingju með þetta allt saman, gaman að fylgjast með. sjáumst í ágúst.
idg og áæg
Skrifa ummæli