fimmtudagur, mars 16, 2006

Mamma kemur í heimsókn á morgun. Guðrún Rósa hefur verið veik í dag, en fer skánandi sýnist mér - hún er a.m.k. byrjuð að tala. Kristjón hefur líka verið eitthvað ergilegur, en hefur samt verið sofandi síðustu 2-3 tíma sem er óvenjulegt.

Ég byrjasvo á jóga námskeiðinu um helgina það er sem sagt 9 til 11 laugardaginn og sunnudaginn. Ég get ekki annað sagt en að ég sé spenntur. Í tilefni af því segi ég hér: aum, eða óm eins og maður segir á íslensku.

Annars er magnað hvað það getur tekið mann langan tíma að finna viss smáatriði á internetinu. Í dag tók það mig til dæmis hartnær tvo klukkutíma að finna eitt slíkt. En að lokum fann ég það...

1 ummæli:

Björkin sagði...

Bið kærlega að heilsa mömmu þinni. Ég er með góðrahugsanaspjöldin frá henni límd á skjalaskápinn minn á skrifstofunni svona til að reyna að hætta að vera neikvæð.