Aðgerð verðlaun Nóbel tekur sífeldum breytingum, stökkbreytingum. Kenningar bætast við meðan aðrar falla frá, allt er þetta samt samviskusamlega skráð niður. Já og seiseisei...
...jú, hér er eitt. Við (ég) leigðum hér í gær myndina Amityville Horror. Hræðileg! Niðurstaða dagsins í dag: KK vill fara á vídeóleiguna! Ég get ekki annað en stutt þá niðurstöðu í ljósi fyrri frammistöðu minnar. Ég mæli samt eindregið með þessari mynd fyrir unglingsstelpur sem hafa gaman af að horfa á olíuborinn vöðvastæltan mann höggva eldivið í öðru hverju atriði. Ég hélt þetta væri draugamynd! Það hefur bara ekki verið gerð góð draugamynd lengi, fyrir utan kannski 'The Others'. Ég skil bara ekkert í mér, ég er nefnilega með æðislegan smekk fyrir myndum alla jafna...
mánudagur, mars 13, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
11 ummæli:
Ja hvur skrambinn! Ef maður hefði nú vitað það fyrr að þessi myndarlegi maður, sem fetar í fótspor James Brólins hótelstjóra, væri viðhöggvari hefði maður náttúrulega leigt þessa mynd fyrir löngu!!! Endurgerð Amityville með gaurnum úr "2 guys a girl and a pizzaplace" í aðalhutverki...
Hvað varstu að hugsa Gummi??
Ég gat ekki með nokkru móti séð hver lék í myndinni, honest!...ég leitaði og leitaði. Og svo var engin nærmynd á hulstrinu, ég sá bara skegg - datt í hug Jason Lee sem mér finnst ágætur.
Svo er bannað að efast um mig í athugasemdakerfinu! Ég gæti tekið upp á ritskoðun...
Húrra fyrir Gudmanni, hip hip ...
Hei Gummi...ertu nokkuð orðinn múslimi? Bara svona að spá hvaðan ritskoðunargenið kæmi... og Ryan Reynolds er massa fínn leikari--allavegana voða sætur...
Pís át
Hmm...ég var búinn að skrifa færslu...
Ágúst er besti kommentarinn og jafnvel efni í aðalkommentara danska kommentaraflokksins.
Heitir hann Ryan Reynolds? Er hann skyldur Burt? Múslímsk hugsun er smitandi í þessu hverfi...
mér finnst þú líka ógslea góður að kommenta og bloggið það er náttla bara frábært
Amm, hann er pabbi Burts Reynolds, sonur Debbiear Reynolds og fjarskyldur frændi Judge Reynolds (hét hann það ekki beverly hills cop gaurinn..)
Ætla ekki að taka þátt í þessu kommentaskrumi hjá ykkur--er með of svarta sýn á heiminn til að hrósa fólki--
Gummi vinnur nú oft ágætlega í því að hrósa sér bara sjálfur sbr. Nóbelssamlíkinguna hér að ofan ;)
Ég vil líka alltaf eiga síðasta orðið og nú fer að líða að því að færslum verði eytt. grr grr grr...
orð
punktur.
Skrifa ummæli