sunnudagur, september 30, 2007

Herbergisfélaginn enn og aftur...

Þetta er komið út fyrir allan þjófabálk. Í morgunn vaknaði herbergisfélaginn 10 mínútur í sex! Ég minni á að í gær vaknaði hann klukkan sex. Ef þetta heldur áfram svona þá vaknar hann klukkan 5 eftir 5 daga og þannig koll af kolli þangað til hann sofnar barasta ekki.

Hann heimtaði auðvitað að horfa á Lilla. Og þegar hann horfir á Lilla þá þýðir það að ég þarf að vera hjá honum. Ég get ekkert farið inn að sofa aftur sko - þannig að ég plantaði mér bara á gólfið og náði smá kríu í viðbót (kría eins og í svefn ekki fugl, fyrir bókstafsmennina).

Þegar ég vaknaði aftur náði ég í fartölvuna og hugsaði mér gott til glóðarinnar að lesa aðeins í blaði sannleikans meðan herbergisfélaginn horfði á barnatímann. Nei, þá er hann svona mikill tölvuáhugamaður. Þá sérstaklega liðlegur í að bleyta tölvuna.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jahá, herbergisfélaginn er aldeilis hress! Merkilegt með þessa herbergisfélaga og tölvuáhugann, ég má einmitt ekki opna tölvuna mína þá er herbergisfélagi minn kominn og vill ,kikka gummaba´ (fyrir þá sem kunna ekki herbergisfélagatungumál þýðir þetta: kíkja á gúmmíbangsann í tölvunni).