mánudagur, júlí 30, 2007

Sommerferie

Ég byrjaði opinberlega í fríi í dag (frá vinnunni). Það er nóg að gera hér - enda hef ég bara verið að vinna undanfarið og ekkert gert hér heima. Við keyptum risastóran sjónvarpsskáp á laugardaginn. Kristjana hafði séð hann á Barnalandi. Ég var búinn að sjá mynd af skápnum og hélt að þetta væri svona venjulegur hár skápur. En viti menn! Þessi skápur er svona tonn á þyngd - en ég og Haddi (Dóri fyrir suma) fórum nú létt með þetta og nú erum við 1 fermeter fátækari. Þennan sama dag skruppum við Kristjana og Kristjón í IKEA og keyptum hillur í geymsluna. Guðrún var í sveitinni með afa Óla og ömmu Ásu.


Á sunnudaginnn skrapp ég svo og keypti Billy bókaskápa einn sem er 80cm breiður og hinn 40cm. Keypti líka framlengingar á þessa skápa. Heimilið er farið að líta út eins og heimili.

Engin ummæli: