
Ég hjólaði í vinnuna í dag. Ansi gott - a.m.k. á leiðinni í vinnuna, en það er allt niður brekku. Þrátt fyrir það er nú ekkert leiðinlegt að hjóla nokkrar brekkur á leiðinni heim. Það losar aðeins um blóðið í manni eftir vinnudaginn og maður fær langþráð súrefni.
Af því að ég var kominn snemma í morgunn þá hætti ég líka snemma. Ég nýtti að sjálfsögðu tækifærið og þreif baðherbergið - enda er ég ótrúlega duglegur þegar kemur að þrifum. Ég hef meira að segja verið kallaður Mr. Proper. Ekki veit ég samt hvort það er hól. Ég fór líka í Bónus og Endurvinnsluna.
Þegar maður er með lítið pláss en vill endurvinna þá saknar maður nú stundum þess að ekki séu dósavélar í kjörbúðum eins og í Danmörku. Það er svo sem margt annað sem maður vildi líka sjá í íslenskum kjörbúðum sem er til staðar í dönskum...
1 ummæli:
Langt síðan ég hef heyrt (eee, séð) einhvern nota orðið ,kjörbúð´. Fínt orð, alltof lítið notað.
Skrifa ummæli