laugardagur, september 30, 2006

Mér verður mál að æla...

...þegar ég sé bíla með hégómaplötum á. Fólk sem telur að það hafi efni á að eyða 30 þúsund kalli í svona ætti að vera sektað um annað eins. Sá peningur ætti síðan að renna til einhverra sem eru staddir i nauðum.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jáhá, t.d. til þeirra sem þurfa á lýtalækningum að halda!

GO sagði...

já eða þeirra sem þurfa nauðsynlega á flatskjá að halda vegna þess að hann bara passar svo miklu betur í íbúðina - auk þess sem sjónvarp er náttúrulega lýti á íbúð...

Nafnlaus sagði...

Það er ekkert að flatskjáum! en hégómabílnúmer eru ekki smart. Á annars ekkert að skella sér að briddsnámskeið hjá fyrirtækinu? Er búin að skrá mig, á ekki að skrá sig og tjellinguna?

Kristjana Knudsen sagði...

hmmm Rósa varstu að kaupa þér einn flatan?

Nafnlaus sagði...

annars finnst mér nýja færslan hennar Ilmar og þín ríma svolítið, eru báðar um bílamenningu og hvernig sú menning er orðinn spilt og ljót.

GO sagði...

Nema Ilmur er meiri fasisti en ég í þessum málum:-)