sunnudagur, ágúst 13, 2006

Tölvur og kjúklingur

Ódýrustu tölvurnar á Íslandi kosta um 89.900kr. Í Danmörku er þetta um 50.000. Skýrasta dæmið um þetta er Dell Inspiron tölvan sem ég er að pikka á sem kostaði 40.000. Nákvæmlega eins "spekkuð" tölva á Íslandi kostar 89.900. Kostar 49.900kr að flytja þessa tölvu hingað og tolla hana?

Að lokum má benda á að kjúklingabringur í krónunni eru meira en 3svar sinnum dýrari en í Fakta eða Netto í Danmörku. Er ekki framleiddur kjúklingur á Íslandi? Af hverju þarf hann að vera svona mikið dýrari?

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

gvöð mar fær bara hroll við tilhugsunina við að kaupa í matinn á íslandi.

p.s Við keyptum heilan kjúlla 30 kr. í Bilka í gær....