sunnudagur, júlí 09, 2006

Uppáhaldslagið

Ég hef nú ekki verið þekktur fyrir að fíla svona tónlist. En þetta er uppáhaldslagið mitt þessa daganna og meira að segja danskt. Ég hélt fyrst að þetta væri Jókerinn. Þetta myndband er samt ansi fyndið og narsasisminn alsráðandi eins og allstaðar í dag.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju. Til hamingju!!!! Mér tekst ekki að heyra þetta skemmtilega hér. Er of óþolinmóð. En gaman samt. Veistu hvað? Það er kominn ísskápur í sumó! Trúirðu þessu? Og gaseldavélin virkar. Og það er ekki síst að þakka góðum englum sem birtust á réttum tíma. Þú þekkir þá, þekktir sem knudsens. Þeir hafa örugglega unnið sér inn nokkra englapunkta með þessu góðverki. Við Nolli erum svo búin að henda þeirri gömlu, enda var hún orðin meira en 40 ára, hah. Kominn tími til að þakka fyrir sig. Svo verður þetta bara betra og betra. Gaman verður að fá ykkur heim. Gaman er náttúrlega ekki rétta orðið. Ég vona að ég fái að sjá ritgerðina. Við heyrumst. Ég braut nokkur rifbein í dag, það lagast, segi þér frá þeim ósköpum en engum öðrum, þetta var svo klaufalegt. Kemst yfir þetta. MAMMA

Nafnlaus sagði...

Þessi sending mistókst, vonandi kemur þetta all fram, alla vega: Margfaldlega til hamingju!!!!