...í það að maður flytji heim á klakann - brrrr. Það verður smá breyting veðurlega - amk fram á haustið. Maður þarf að afvenjast því að vera sveittur allan daginn, jú og líka svona fallega brúnn. Og jafnvel að fara í jakka aftur.
En við erum bara spennt hér í pökkuninni á N53. Samt helvítis álag á manni eitthvað:-)
Svo virðist sem mamma muni ná í okkur upp á Leifstöð nk. miðvikudag, en pabbi hafði hugsað sér það líka. Mamma er í fríi þannig að það er betra fyrir alla, svo er hún líka kominn á einhvern svaka Rav-kagga - kannski fær maður að keyra:-)
Við erum að vonast til að klára pökkun á morgun og hafa helgina fyrir fjölskylduna - kíkja á ströndina í Charlottenlund eða eitthvað álíka. Spáin er 25 stig út í hið óendanlega þannig að strandferð er ekki vitlaus. Mig langar líka að synda í sjónum og ég veit að Guðrún er líka ferlega spennt fyrir því.
Horfðum á myndina hans Spílberg í gær um Munchen (er ekki til íslenskt heiti fyrir þessa borg sbr. London/Lundúnir - Munkheimur var það eitthvað annað?). Myndin er náttúrulega ekki um Munchen, bara heitir það því hún fjallar um meinta atburðarrás eftir hryðjuverk sem áttu sér stað á Ólympíuleikunum sem voru haldnir í Munchen 1972. Okkur þótti þetta góð mynd - hún náði að halda í mann sem er sjaldgæft. Gaman var líka að sjá að ég þekkti hin og þessi smáatriði varðandi Ísraela eftir að hafa hlustað á Moshe sl. 2 ár.
Talandi um Moshe þá ætlum við uppúr mánaðarmótum að fara að hefjast handa við að gera grein úr ritgerðinni okkar. Stefnt er á að fá hana birta í hinni virtu Journal (íslenskt heiti takk) Management International Review. Varðandi birtingu á ritgerðinni hér þá held ég að ég geri það ekki. En ef einhver vill kíkja á hana þá getur sá hinn sami sent mér tölvupóst og fengið eintak sent um hæl.
fimmtudagur, júlí 27, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Journal er nú bara fagrit held ég. Annars fannst mér ekki verra að góna á aðalleikara myndarinnar...hann má terrorísera mig hvenær sem er.
Já en var hann svona flottur þegar hann lék Hulk?
Skrifa ummæli