When I took office, only high energy physicists had ever heard of what is called the Worldwide Web.... Now even my cat has its own page. - Bill Clinton, 1996
Okkur þótti við hæfi að nota þessa tilvitnun í lokaorðum okkar - enda Bill Clinton mikill húmoristi og ræðusnillingur, auk þess að vera kvennamaður. Það er það að segja að við stöndum núna allt í allt (með viðaukum en án forsíðu) á 120 blaðsíðum. Það verður nú ansi gaman í næstu viku að fara bara að einbeita sér að asískum fræðum og leggja þessa blessuðu ritgerð frá sér.
Volker er annars búinn að boða okkur á fund á mánudag. Spennandi að sjá hvað hann vill. Moshe er með alls kyns hugmyndir í gangi - allt frá því að hann skammi okkur fyrir það hversu sjálfumglaðir og montnir við erum, til þess að hann bjóði okkur að skrifa með sér eða jafnvel stöðu við Informatics deildina. Ég persónulega held nú bara að hann ætli að segja nokkur lokaorð áður en hann sleppir okkur, hvernig vörninni verður hagað og svo framvegis. Júlí fer svo í frekari undirbúning fyrir 'kvörnina'. Lifið heil en ekki hálf.
laugardagur, júní 17, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
120 bls! Ef ég væri með hatt myndi ég taka ofan fyrir þér. Til hamingju, glæsilegt!
gangi ykkur vel í viðtalinu. Kannski ætlar hann að koma út úr skápnum sem geimvera og bjóða ykkur með í ferðalag á geimskipinu sínu sem er dulbúið eins og dönsk kennarastofa...Bara pæling
Skrifa ummæli