laugardagur, maí 20, 2006

Óumbúin rúm

Við frúin horfðum á gamla mynd hér í gær (1997) Unmade Beds. Mynd sem er í heimildarstíl um einkamálaauglýsingasenuna í NY. Skiptar skoðanir um hvort þessi mynd hafi verið vaskekta, okkur fannst hún nú ansi stíliseruð og karakterarnir full frumlegir til að svo geti verið. En engu að síður var þetta fín mynd. Við borðuðum tonn af nammi og fórum bæði í bælið með magapínu - en svona er þetta stundum.

1 ummæli:

Björkin sagði...

Nammimagapína er súrsæt. Hvenær ætliði að kveðja baunana og koma heim?