Fimbulkuldi, munstur, einokun og tær
Hér er fimbulkuldi. mbl segir að hér séu 0 gráður, wunderground segir hins vegar -1 gráða - hvor ætli hafi rétt fyrir sér. Ég hef alltaf sagt að Mogginn sé blað sannleikans, en m.v. eigið kuldaskyn eru smá efasemdir að koma í ljós. Ég verð líklega að kæfa þessa óraunsæu hugsun með áfengi 'viva la ignorance'...nei segi svona - hér drekkum við ekki á virkum dögum og hér er ekki svo kalt, -1 gráða 0 gráður enginn munur.
Ég var að vonast til að finna ákveðið munstur í dag - hins vegar fann ég það ekki, eða segja má að það sé óvíst hvort ég finni það. Ég hlýt samt að finna það á endanum, bara bæta við fleiri breytum:-)
Ég var að segja Moshe frá auðhring sem ég var að skoða um daginn. Þessi auðhringur er eignarhaldsfélag yfir nánast öllum fjölmiðlum í mið- og suður Ameríku. Hann teygir líka anga sína til annarra 'latínskra' landa. Honum fannst þetta hljóma eins og Ísland. Þetta fannst mér fyndið...
Líkami Kristjóns er kominn í samkeppni við sjálfan sig. Drengurinn hefur verið sólginn í hendurnar á sér frá fæðingu og gildir þar einu hvort um er að ræða hægri eða vinstri. Nú bregður hins vegar svo við að hann er farinn að reyna að gæða sér á tánum sínum. Þetta hefur verið aðalmálið síðan hjúkrunarkonan kom fyrir viku og tróð þeim uppí hann með orðunum: 'Kan du spise dine tæer?'
Jæja hér er hvítlauksilmur og brauð í obbni - ungviðið fær pylsur...
fimmtudagur, mars 09, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Þetta þýðir náttlega að fyrsta tungumál KKjr er danska fyrst hann skilur hjúkkuna svona vel:(
já og að hann er innflytjandi af annarri kynslóð
anonymús er ágúst, get skrifað undir
get ekki skrifað undir (átti það að vera)
ágúst
Skrifa ummæli