Ég hef mætt mikið af mönnum af miðausturlenskum uppruna undanfarið sem er svo sem ekki skrítið þar sem ég bý í einu stærsta múslimahverfi Kaupmannahafnar. Ég hef líka verslað hjá 'lókal frúgt og grönthandlernum' mínum en enginn þeirra hefur sagt neitt slæmt við mig eða reynt að drepa mig. Kannski vita þeir bara að ég er ekki Dani eða þeim er bara slétt sama um þetta allt saman. Annars er þetta mál á bannlista hjá mér.
Við brugðum annars undir okkur betri fætinum í gær og fórum í matarboð. Þetta endaði náttúrlega alveg í algerri vitleysu og fylleríi og maður man varla hvernig maður komst heim með börnin. Gaman að þessu.
Hér var annars vaknað tiltölulega snemma - eða amk vaknaði ég snemma við að Kristjana bað mig að hunskast fram og vera með börnunum svo hún gæti sofið - svona er maður nú helvíti undirokaður...
Ég fór í svaka göngu með Kristjón og keypti 'æbleskiver' það verður gaman að borða þær á eftir með ís. Eftir það hef ég bara hugsað mér að kela við konuna svo hún fyrirgefi mér fyrir það að semja svona leiðindalygaþvælufærslusemerbaragerðtilaðhafaeitthvaðhérna...
6 ummæli:
Þetta var nú varla orðið neitt fyllerí ... verðum að tækla þetta betur næst:)
Ég vona að enginn trúi þessari vitleysu um að muna ekki eftir að hafa farið heim með börnin;) Mætti halda að það hafi verið Gummi sem pissaði fyrir framan hina konunglegu verði um daginn, eftir að hafa drukkið heila fimm litla öl.
Ég segi svona...
biddu? var thetta ekki Gudmann^? Limur (dulmal)
Limur? Bíddu, það er einhver lykt af þessu...eins og í eldhúsinu sem er so lokkandi...
Hvers konar sódómískur ósómalifnaðarháttur er þetta þarna í Kaupmannahöfn, jahérna, ég er alveg gáttuð! Mikið að þið týnduð bara ekki börnunum einhversstaðar á Istegade... hehe. bestu kveðjur, Rósa og Stubbalingur.
Skrifa ummæli