Pizza, pizza o.fl.
Hér var pizza í matinn í gær - pizzurnar verða alltaf betri og betri. Við KK drukkum líka smá bjór með þessu og horfðum á American Idol.
Á mánudaginn er Fastelavn hér í Danmörku - fyrir þá sem ekki vita er þetta svona blanda af Bolludegi og Öskudegi, maður saknar þess aðeins að geta ekki troðið sprengidegi líka þarna en líklega væri það soldið erfitt. Af þessu tilefni er ég að hugsa um að baka mínar fyrstu vatnsdeigsbollur. Kristjana segir að ég sé einum of í þessu heimatilbúna, en ég segi að bestu bollur sem ég hef fengið um ævina hafa alltaf verið heimatilbúnar. Guðrún Rósa vil hafa Smarties í sínum - ætli maður reyni það ekki.
En, næst á dagskrá...Ballet!
laugardagur, febrúar 25, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli