þriðjudagur, janúar 24, 2006

Skrítnir þessir Danir


Við búum hér í íbúð annars manns og með henni fylgir allt hans dót. Þetta gerir að verkum að við erum svoldið persónulaus stundum. En það er svo sem ekki alslæmt, maður getur stundum verið alltof persónulegur og það er nógur tími í að verða umkringdur af eigin drasli. Það sem er hins vegar verra er að hann er eins og Danir flestir með algerlega óvirk tæki til heimilisnota. Til að nefna nokkur dæmi þá er hérna svona flöt grind sem volgnar og maður leggur brauðsneið á - þetta kallar hann brauðrist. Þetta er alveg óvirkt tæki - eftir tíu mínútur á ristinni þarf að snúa brauðinu við og loks þegar sú hlið er orðin volg þá er hin orðin köld - halló, hver kaupir svona. Kaffivélin er svo annar kapituli - til að gera langa sögu stutta þá tekur það 15-20 mínútur að hella upp á fulla könnu. Það eru fleiri hlutir en þetta er það alversta.

Annars er allt í góðu gengi á Nattergalevej. Við erum í svona 'prufu-átaki' hérna sem þýðir að við höfum ákveðiði að neita því að neyta sykurs (í nammi- og gosformi) þangað til 6. febrúar - eða jafnvel halda áfram úr því. Þetta er svona tilraun til að sjá hvort þetta hefur áhrif á líðan og form.

Hér var sett í þrjár vélar í gær þannig að stofan er eins og kínverskt þvottahús - sem minnir mig á það að ég þarf að fara að skrifa úrdrátt fyrir U67 prófið mitt fljótlega - það er hins vegar bara til að spara tíma þar sem prófið er ekki fyrr en í vor.

Engin ummæli: