Annar þrælspennandi dagur í höfn kaupmannanna. Vaknaði grútþreyttur í morgun þrátt fyrir að hafa sofið hálftíma lengur en venjulega. Ég eldaði síðan hafragraut handa öðrum en mér, sem auðvitað var of þurr, enda borða ég ekki hafragraut og kann þar af leiðandi ekki að elda hann. En það er hins vegar nokkuð einfalt - einn á móti þremur segir konan.
Ég fór í tíma í dag og var umræðuefnið samningaviðræður við Kínverja og Japani - þetta er náttúrulega klikkað lið. Eða virðist vera það þegar kennarinn lýsir því og allir hlæja af hugsunarganginum hjá þeim. Ég þekki nú samt einn Japana og hún er nú ekkert svo skrítin.
Ég hef aldrei staðið mig jafn vel í að skrifa blogg og hér. Hins vegar hef ég bara tvo lesendur, Kristjönu og vinkonu hennar. En það er bara fínt - hæ Kristjana og hæ Elín.
fimmtudagur, desember 01, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Hæ Gummi. Það er eins með þetta og annað. Ekki spurning um magn heldur gæði.
Það er svo sannarlega satt...
búinn að landa einum í viðbót
Skrifa ummæli